Viltu aðstoð með uppestningu á airbnb og/eða booking?
Uppsetning á Airbnb og Booking (eitt skipti)
Sumir auglýsa íbúðina sína hér á Flakkid.is eða inná sér bókunarsíðu eða jafnvel taka niður bókanir persónulega. Margir sem gera það eru þá að einblína á að fá einungis Íslenska gesti.
Ef þú vilt hámarka nýtingu eignarinnar eins og hægt er og ná til enn stærri hóp að þá mælum við með að skrá hana á airbnb og/eða booking. Þar getum við hjálpað með allt frá a-ö svo allt sé rétt sett upp og skráð.
Við skráum eignina alltaf í nafni eigandans svo hann á skráninguna alltaf, en ekki í okkar nafni. Mörg fyrirtæki sem bjóða sambærilega þjónustu skrá eignirnar á sitt nafn svo þá ertu bundinn þeim alltaf og allar umsagnir sem eignin fær frá gestum detta út ef þú vilt seinna meir slíta þig frá þjónustunni.
Við gerum þetta öðruvísi, við einfaldlega hjálpum þér að byrja og hvort sem þú vilt svo alfarið sjá um allt sjálf/ur eftir það eða nýta þér eignaumsjóna (co-host) frá okkur, er þitt val.
Eignaumsjónin (co host) felst í því að vera aðal tengiliður tilvonandi og núverandi gesta, vera þeim innan handar með það sem gæti komið uppá, undibúa íbúðina fyrir næstu gesti og þrif. Þessi þjónusta er einungis í boði fyrir eignir á Costa Blanca suður og norður, Spán.
Uppsetningin á airbnb/booking getum við gert fyrir eignir hvar sem er í heiminum svo lengi sem eigandi gefur okkur allar þær upplýsingar sem við þurfum.
Afhverju er Flakkið að bjóða upp á þessa þjónustu?
Flakkið er fyrst og fremst hugsað sem svæði fyrir fólk hvar sem er í heiminum að auglýsa eignir til leigu eða óska eftir leigu og húsaskiptum. Flakkið er ekki bókunarsíða, svo fólk er velkomið að vera með eignir skráðar á hvaða bókunar-leigusíðum sem er og auglýsa hana á Flakkinu til þess að vekja athygli á henni fyrir öðrum Íslendingum.
Flakkið ákvað að bjóða uppá eignaumsjón og aðstoð við uppsetningu á airbnb/booking vegna þess að við höfum brennandi áhuga á öllu þessu tengt, enda þess vegna var Flakkið stofnað, til að sameina alla íslenska íbúðareigendur um allan heim á einn stað, Flakkid.is.
Hefurðu áhuga?
Ert þú ert með eign í útleigu eða ert að hugsa um að byrja?
Endilega heyrðu í okkur og við getum spjallað!
📩 flakkid@flakkid.is
eða í gegnum Facebook síðu Flakksins



