Eignaumsjón á Costa Blanca og uppsetning eignar á airbnb/booking.com
Ertu með íbúð á Costa Blanca sem þú vilt leigja út en ert ekki á svæðinu eða getur ekki séð um allt sem fylgir?
Nú bjóðum við upp á eignaumsjón og einnig aðstoð með uppsetningu á airbnb og/eða booking fyrir eignina þína.
Svæðin og eignir sem við tökum að okkur
Við getum verið með eignir í allt að klukkutíma fjarlægð norður eða suður af Alicante borg, allt frá íbúðum upp í stór einbýlishús.
Hvað er nákvæmlega það sem við gerum?
Það er tvenns konar þjónusta sem við bjóðum upp á. Annarsvegar eignaumsjón og hinsvegar uppsetning leigueignar inn á airbnb og booking.
Eignaumsjón:
Við verðum aðal tengiliður fyrir tilvonandi og núverandi gesti, verum þeim innan handar með allt sem gæti komið upp á, veita þeim ráðleggingar og tips um svæðið ef þess sé óskað.
Sjáum um lykla afhendingu, ef þú sem eigandi vilt að lykla afhending sé persónuleg þá mætum við á staðinn og tökum á móti gestunum. Í dag er samt algengt að vera með lyklabox svo gestir geti mætt þegar þeim hentar, en allur gangur er á þessu fyrirkomulagi.
Þrif eftir gesti og undirbúum eignina fyrir þá næstu.
Uppsetning á Airbnb og Booking (eitt skipti)
Sumir auglýsa íbúðina sína hér á Flakkid.is eða inná sér bókunarsíðu eða jafnvel taka niður bókanir persónulega. Margir sem gera það eru þá að einblína á að fá einungis Íslenska gesti. Ef þú vilt hámarka nýtingu eignarinnar eins og hægt er og ná til enn stærri hóp að þá mælum við með að skrá hana á airbnb og/eða booking. Þar getum við hjálpað með allt frá a-ö svo allt sé rétt sett upp og skráð. Við skráum eignina alltaf í nafni eigandans svo hann á skráninguna alltaf, en ekki í okkar nafni. Mörg fyrirtæki sem bjóða sambærilega þjónustu skrá eignirnar á sitt nafn svo þá ertu bundinn þeim alltaf og allar umsagnir sem eignin fær frá gestum detta út ef þú vilt seinna meir slíta þig frá þjónustunni.
Við gerum þetta öðruvísi, við einfaldlega hjálpum þér að byrja og hvort sem þú vilt svo alfarið sjá um allt sjálf/ur eftir það eða nýta þér eignaumsjóna frá okkur, er þitt val.
Býrðu ekki á Spáni en hefur áhuga á að fá aðstoð með að setja eignina þína á airbnb/booking? Ekkert mál, heyrðu endilega í okkur!
Öll þjónustan okkar er persónuleg og er það Kristbjörg eigandi Flakksins sem sér um allt. Öll samskipti við gesti eru því gerð í hennar nafni en ekki "Flakkið"
Við höfum nokkrar ára reynslu af airbnb útleigu íbúðum á Íslandi þar sem við fengum alltaf mjög góðar umsagnir eftir gesti, enda leggjum við mjög mikið upp úr því að allt sé eins ánægjulegt fyrir gestina og mögulegt er. Við veitum öllum smáatriðum athygli og ef eitthvað má bæta förum við strax í málið!
Hér er hægt að sjá stjörnugjöfina frá gestum af fyrri íbúðum sem Kristbjörg sá alfarið um.


Takmörkuð pláss til að byrja með
Til að tryggja gæði og persónulega þjónustu að þá tökum við að okkur fáar eignir til að byrja með. Einnig metum við hvaða eignir henta að taka út frá staðsetningu og keyrslu, til þess að geta alltaf verið innan handar fyrir alla gesti ef þess þarf.
Afhverju er Flakkið að bjóða upp á þessa þjónustu?
Flakkið er fyrst og fremst hugsað sem svæði fyrir fólk hvar sem er í heiminum að auglýsa eignir til leigu eða óska eftir leigu og húsaskiptum. Flakkið er ekki bókunarsíða, svo fólk er velkomið að vera með eignir skráðar á hvaða leigusíðum sem er og auglýsa hana á Flakkinu til þess að vekja athygli og henni fyrir öðrum Íslendingum.
Flakkið ákvað að bjóða uppá eignaumsjón og aðstoð við uppsetningu á airbnb/booking vegna þess að við höfum brennandi áhuga á öllu þessu tengt, enda þess vegna var Flakkið stofnað, til að sameina alla íslenska íbúðareigendur um allan heim á einn stað, Flakkid.is.
Hefurðu áhuga?
Ef þú ert með eign í útleigu eða ert að hugsa um að byrja?
Athugið, það er ekki nauðsynlegt að íbúðin sé skráð á airbnb eða booking. Ef þú ert nú þegar með bókunarkerfi sem virkar fyrir þig að þá er það flott!
Endilega sendu skilaboð og við getum spjallað!
📩 flakkid@flakkid.is
eða í gegnum Facebook síðu Flakksins



