Hvað þarf að hafa í huga þegar þú leigir í útlöndum?
Að leigja íbúð í útlöndum getur verið ein besta leiðin til að upplifa nýjan stað á persónulegri hátt. Þú færð meira rými, meira frelsi og oft betri tengingu við umhverfið en ef þú gistir á hóteli. Hins vegar er mikilvægt að vera vel undirbúinn áður en þú bókar, því það eru nokkur atriði sem geta haft mikil áhrif á upplifunina.
Staðsetning skiptir öllu máli
Þegar þú skoðar eignir er auðvelt að heillast af fallegum myndum, en staðsetningin er í raun það sem skiptir mestu máli. Það er mikilvægt að skoða hverfið vel og átta sig á því hvort það henti þínum þörfum. Er langt í miðbæinn eða ströndina? Eru veitingastaðir og verslanir í göngufæri? Hvernig eru samgöngur á svæðinu? Er nauðsynlegt að vera á bílaleigubíl?
Google Maps getur verið einn besti vinur þinn í þessu ferli. Með því að skoða svæðið þar færðu miklu skýrari mynd af því hvernig daglegt líf verður á staðnum.
Verð og falinn kostnaður
Verðið sem þú sérð fyrst er ekki alltaf heildarmyndin. Það er mjög mikilvægt að fara vel yfir hvað er innifalið og hvað ekki. Til dæmis getur rafmagn verið rukkað sér, þrif geta bæst ofan á og oft þarf að greiða tryggingargjald (deposit).
Þetta getur haft töluverð áhrif á heildarkostnaðinn, þannig að eign sem virðist ódýr við fyrstu sýn getur fljótt orðið mun dýrari þegar allt er talið saman.
Leigutími og reglur
Áður en þú bókar er gott að fá á hreint hvenær þú færð lyklana afhenta og hvernig, er lykla box eða mun eigandinn hitta þig persónulega? Hversu lengi þú mátt vera í eigninni á brottfaradegi og hvaða reglur gilda í eigninni. Sumir eigendur eða húsfélög eru með ákveðnar reglur varðandi hávaða, gesti eða notkun á eigninni.
Það er alltaf betra að vita þetta fyrirfram frekar en að lenda í óþægilegum aðstæðum síðar.
Öryggi og traust
Traust er lykilatriði þegar þú leigir beint af eiganda. Það er mikilvægt að eiga góð samskipti við eigandann, spyrja spurninga og fá allar helstu upplýsingar skriflega.
Forðastu að greiða utan öruggra greiðsluleiða og treystu innsæinu þínu. Ef eitthvað virkar óeðlilegt eða of gott til að vera satt, þá er oft ástæða til að skoða það betur. Við Íslendingar erum lítið samfélag og auðvelt að fletta hvort öðru upp á samfélagsmiðlun eða jafnvel þjóðskrá og gera smá bakgrunnstjékk ef maður er óviss með hver manneskjan á bakvið eignina er.
Aðbúnaður skiptir meira máli en þú heldur
Það er auðvelt að gleyma smáatriðum, en þau geta haft mikil áhrif á dvölina. Ef þú ert að vinna í ferðinni er gott internet nánast nauðsyn. Einnig skiptir máli hvort eldhúsið sé vel útbúið eða hvort þvottavél sé til staðar, sérstaklega ef þú ert að dvelja í lengri tíma.
Þetta eru hlutir sem geta gert dvölina annað hvort mjög þægilega eða frekar erfiða. Svo ef eitthvað skipti þig miklu máli, fáðu það þá staðfest áður hvort sá aðbúnaður sé til staðar.
Raunveruleikinn vs myndir
Oftast er fólk með fínar myndir af eigninni en í sumum tilvikum geta myndir verið villandi og ekki gefið rétta mynd af eigninni. Þess vegna er góð hugmynd að biðja um nýlegar myndir eða jafnvel stutt myndband ef þú ert ekki alveg viss.
Þannig minnkar þú líkurnar á að upplifunin sé öðruvísi en þú bjóst við.
Af hverju að nota Flakkið?
Flakkið tengir þig við Íslendinga um allan heim. Þar færðu beint samband við eigendur og getur fundið gistingu sem hentar þínum þörfum.
Skoðaðu eignir á Flakkið og finndu þína næstu dvöl.



