Ég (25 ára) og kærasta mín (24 ára) erum að flytja til Amsterdam/Harleem 11. maí í von um að finna okkar framtíðar heimili og stefnum á að finna okkur vinnu og sækja í nám. Við erum því að leita okkur að íbúð til langtíma leigu en þar sem við höfum heyrt að leigumarkaðurinn sé frekar erfiður og að betra sé að vera á staðnum til að skoða íbúðir, leitum við því einnig að skammtímaleigu/sublet þangað til að íbúðarleitinni líkur.
Sjálfur útskrifaðist ég úr BA námi í tónlistarframleiðslu og hljóðtækniverkfræði í London síðast liðið vor og stefni á að leita að vinnu á því starfssviði. Konný lauk einnig BA námi í félagsráðgjöf síðasta vor og stefnir á master nám í "International crimes, conflicts & criminology" í VU háskólanum í Amsterdam.
Við erum ábyrg, snyrtileg og berum virðingu fyrir eignum og friðhelgi annarra og erum að auki með reynslu af því að leigja með öðru fólki. Við reiknum með að mikill tími eigi eftir að fara í að skoða íbúðir, vinnur og kynnast borginni, þar af leiðandi verðum við líklega lítið heima við til að byrja með.
Við erum opin fyrir öllu, hvort sem það er íbúð, stúdíó eða jafnvel herbergi, helst út maí með möguleika á framlengingu eftir þörf en skoðum alla möguleika.
Ef um langtímaleigu er að ræða þá óskum við helst eftir 1+ herbergja íbúð og erum með greiðslugetu allt að €1750 á mánuði. Við erum opin fyrir því að skoða allt, helst í Amsterdam en líka Haarlem, Zaandam eða öðrum umliggjandi bæjarfélögum.